Tenglar

8. desember 2009 |

Arnarsetrið fékk einn af hæstu styrkjunum

Arnarsetur Íslands í Reykhólahreppi, Edinborgarhúsið á Ísafirði og tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fengu hæstu styrkina við seinni úthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2009 sem fór fram á Reykhólum á föstudag. Voru þar afhent vilyrði um styrki til 37 verkefna að upphæð frá 150 þúsund krónum og upp í eina milljón, samtals 18,5 milljónir króna. Umsóknir sem bárust að þessu sinni voru 89 og var samtals beðið um 75 milljónir í verkefnastyrki.

 

Hæstu styrkirnir að þessu sinni, að upphæð ein milljón króna hver, fara til þriggja verkefna. Arnarsetur Íslands í Reykhólahreppi fær styrk til hönnunar og undirbúnings sýningar sem fyrirhugað er að opna næsta sumar, Edinborgarhúsið á Ísafirði fær styrk til listviðburða í Edinborg og félagið Aldrei fór ég suður fær styrk til að halda samnefnda tónlistarhátíð á Ísafirði um næstu páska. Það voru Leifur Ragnar Jónsson formaður Menningarráðsins og Jón Jónsson menningarfulltrúi sem afhentu vilyrði fyrir styrkjum og héldu erindi. Einnig kynnti Bergsveinn Reynisson á Gróustöðum í Reykhólahreppi verkefnið Arnarsetur Íslands, áður en menn sneru sér að kaffi og vöfflum.

 

Styrkirnir fara annars til margvíslegra verkefna sem sýna að sóknarhugur og bjartsýni eru ríkjandi í vestfirsku menningarlífi, þrátt fyrir þrengingar og niðurskurð á fjölmörgum sviðum í samfélaginu, segir í tilkynningu. Næst mun Menningarráð Vestfjarða auglýsa eftir umsóknum um styrki fljótlega á nýju ári.

 

Myndirnar sem hér fylgja frá athöfninni í húsakynnum Hlunnindasýningarinnar á Reykhólum tók Ágúst G. Atlason. Smellið á myndirnar til að stækka þær.

 

 

Listi yfir styrki við seinni úthlutun Menningarráðs Vestfjarða árið 2009:

 

Kr. 1.000.000

- Arnarsetur - hönnun og undirbúningur sýningar (Arnarsetur Íslands)

- Aldrei fór ég suður - tónlistarhátíð á Ísafirði um páskana 2010 (Aldrei fór ég suður, félag)

- Listviðburðir í Edinborgarhúsi júlí 2009 - apríl 2010 (Edinborgarhúsið á Ísafirði)

 

Kr. 750.000

- Vaxandi tungl (Í einni sæng ehf.)

- Sýning í kirkju Samúels í Selárdal (Félag um endurreisn listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal)

- Focus Westfjords (Focus Westfjords)

- Líf í Árneshreppi (Arctic kind production)

- Sýning í Skrímslasetri (Félag áhugamanna um skrímslasetur)

- Svarti víkingurinn - Leikin heimildamynd (Strandagaldur ses.)

 

Kr. 700.000

- Margmiðlunarnámskeið fyrir ungt fólk í Tankinum á Flateyri (Brimnesvegur 28 ehf.)

- Wild Westfjords - Ljósmyndabók + CD (Soffía M. Gústafsdóttir)

 

Kr. 600.000

- Sögusýning um refaveiðar og refaveiðimenn (Melrakkasetur Íslands)

- Sýning um ævi og störf Þorsteins Þorleifssonar (Minja- og handverkshúsið Kört)

 

Kr. 550.000

- Samstarfs- og þróunarverkefni: Listaháskóli unga fólksins (Háskólasetur Vestfjarða)

 

Kr. 500.000

- Drangajökull - sambúð manns og náttúru (Snjáfjallasetur)

- Melrakki - einleikur (Kómedíuleikhúsið)

- Heimildamynd um gerð og uppsetningu altaristöflunnar Fuglar himinsins (Ísafjarðarkirkja)

- Þjóðbrók og hitt hyskið. Myndskreytt barnabók á fjórum tungumálum (Brúðuleikhúsið Dúkkukerran)

- Járnminnismerki (Ljósop ehf.)

 

Kr. 400.000

- Sönglagakeppni Vestfjarða (Magnús Hávarðarson)

- Flæði - Útgáfa á frumsamdri tónlist og tónleikaröð af því tilefni (Magnús Hávarðarson)

- Menning og saga á Bíldudal (Birna Friðbjört Stephensen Hannesdóttir)

- Álfaleitin: Námskeið - leiklist og söngleikur (Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar)

- Sögusýning í Einarshúsi (Einarshúsið ehf.)

- Eikin ættar minnar, af séra Ólafi á Söndum (Íþróttafélagið Höfrungur, leikdeild)

- Samstarfs- og þróunarverkefni: Brennið þið vitar (Listahátíð í Reykjavík)

 

Kr. 300.000

- Þögul mynd af húsi (Minningasafnið)

- Námskeið í faldbúningasaum í heimabyggð (Þjóðbúningafélag Vestfjarða)

- Útgáfa bóka um þjóðtrú með áherslu á Vestfirði (Þjóðfræðistofa)

- Á reki: Útgáfa bókar um rekavið og strandmenningu (Þjóðfræðistofa)

 

Kr. 250.000

- Svo langt sem það nær (Þröstur Jóhannesson)

- Simbahöllin: Old style newspaper (Wouter Van Hoeymissen)

 

Kr. 200.000

- Lýðveldið á Eyrinni (Kvennabragginn)

- Dugmiklar dragþórur - sýning á vélakosti Sauðfjárseturs á Ströndum (Sauðfjársetur á Ströndum)

 

Kr. 150.000

- Kirkjur á Vestfjörðum (Marsibil G. Kristjánsdóttir)

- Söguritun, útgáfa og sýning vegna aldarafmælis Kvenfélagsins Hlífar á Ísafirði árið 2010 (Kvenfélagið Hlíf)

- Vestfirska leikárið 2009-2010 (Kómedíuleikhúsið, Act alone, Brúðuleikhúsið Dúkkukerran, Höfrungur leikdeild, Leikfélag Hólmavíkur, Litli leikklúbburinn)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31