Tenglar

22. apríl 2008 |

Arnarsetrið kynnt á aðalfundi F.V. á Reykhólum

Málþing um menningartengda ferðaþjónustu verður haldið í Bjarkalundi á föstudagskvöldið (25. apríl) í tengslum við aðalfund Ferðamálasamtaka Vestfjarða, sem verður haldinn í Grunnskólanum á Reykhólum á laugardag. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum eftir hádegi á laugardag verða kynnt ýmis verkefni í menningartengdri ferðaþjónustu. Meðal annars verður fjallað um Víkingaverkefnið þar sem einkum er byggt á Gísla sögu Súrssonar, Arnarsetur Íslands í Reykhólahreppi og uppbyggingu og framtíðarsýn Hótels Bjarkalundar. Síðdegis verður farið í skoðunarferð um Reykhólasveit í boði heimamanna.

 

Fundurinn er opinn og eru allir velkomnir að koma og hlýða á fróðleg erindi. Á aðalfundinum sjálfum hafa þeir einir atkvæðisrétt sem eru skráðir í samtökin og hafa greitt árgjald yfirstandi árs til félagsins.

Dagskrána í einstökum atriðum ásamt lögum Ferðamálasamtaka Vestfjarða er að finna hér.

 

Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31