Tenglar

20. nóvember 2008 |

Arnkötludalsvegur ekki opinn í vetur

Það myndi kosta tugi milljóna að hleypa umferð á nýja veginn um Arnkötludal milli Gilsfjarðar og Steingrímsfjarðar í vetur, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, og því verður það ekki gert. Vonir voru bundnar við að nýr heilsársvegur, sem leysir fjallveginn um Tröllatunguheiði af hólmi, yrði það vel á veg kominn í haust að hægt yrði að hleypa umferð á hann í vetur. Það hefur ekki gengið eftir. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hafa framkvæmdir tafist lítillega vegna þess að efni var lakara en búist var við.

 

Eftir er að leggja efra burðarlag vegarins en engu að síður væri hægt að hleypa á hann umferð. Það þykir hins vegar ekki skynsamlegt þar sem núverandi yfirborð vegarins er afar gróft og hann því seinfarinn.

 

Þá myndi kosta tugi milljóna að setja upp nauðsynlegar merkingar og sinna lágmarksþjónustu við veginn í vetur. Að mati Vegagerðarinnar hefði einnig verið æskilegt að setja upp vegrið á nokkrum stöðum en það væri þó ekki nauðsynlegt. Vegna þess hvað vegurinn er seinfarinn í núverandi ástandi yrði tímasparnaðurinn við að fara þessa leið lítill sem enginn, að mati Vegagerðarinnar.

 

Því verður að bíða fram á næsta sumar með að aka um Arnkötludal, en þá verður umferð hleypt á nýja veginn. Framkvæmdum á síðan að vera að mestu lokið næsta haust.

 

ruv.is

 

Athugasemdir

Viktoría Rán Ólafsdóttir, mivikudagur 26 nvember kl: 14:54

Tímasparnaðurinn er gríðarlega mikill fyrir okkur sem þurfum að ferðast á milli Stranda, Reykhóla og Vesturbyggðar.

Oft virðast þessu ágætu vegargerðarmenn gleyma að við keyrum ekki einungis til Reykjavíkur, heldur líka innan svæðis.

Sem dæmi sparar Arnkötluleiðin mér 126 km í hverri ferð eða um 1 1/2 klst í hverri ferð. Ég fer u.þ.b 1-3 ferðir á viku vegna vinnunnar, en mörg atvinnuþróunarverkefni eru unnin í samvinnu á milli svæða.

Dæmi:

a. Hólmavík - Reykhólar um Arnkötluna eða Þorskafjarðarheiði
eru um 148 km fram og til baka.

b. Hólmavík - Reykhólar um Laxárdal
eru um 274 km fram og til baka.

Tímasparnaðurinn er gríðarlegur. Ég hef farið þennan veg og veit að hann er sambærilegur Tröllatunguheiðinni eins og hún var í sumar. Vissulega er hann grófur, en hann er beinn og breiður og liggur mestmegnis um láglendi.

Ekki þarf að merkja veginn með stikum fyrir mig, en gott væri að fá snjóplóg 1-2 á viku og þá færi ég veginn á eigin ábyrgð.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31