24. maí 2018 | Sveinn Ragnarsson
Árný Huld bætist í hóp frambjóðenda
Í dag birti Árný Huld Haraldsdóttir þessa tilkynningu:
„Ég, Árný Huld Haraldsdóttir, bóndi á Bakka í Geiradal, hef ákveðið að bjóða mig fram til sveitarstjórnar Reykhólahrepps í kosningum nk. laugardag 26. maí 2018.
Markmið mitt er að fylgja sannfæringu minni til hagsbóta fyrir sveitarfélagið okkar, hafa jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi og vinna á lausnamiðaðan hátt.
Eigið góðan dag!“