Tenglar

4. apríl 2017 | Sveinn Ragnarsson

Árshátíð Reykhólaskóla á fimmtudaginn

Árshátíð fyrir 10 árum
Árshátíð fyrir 10 árum

Árshátíð verður haldin fimmtudaginn 6. apríl í íþróttasal Reykhólaskóla. 

 

 Yirskrift hátíðarinnar er  „Ferðumst í huganum“. Nemendur leik- og grunnskóla verða með atriði því tengd. Nemendur grunnskóla hafa unnið að verkefnum tengdum hinum ýmsu löndum í heiminum og verður afraksturinn sýndur á hátíðinni.

 

Húsið opnað kl. 19:00 og er mjög æskilegt að nemendur mæti þá. Sýning hefst kl. 19:30 og skemmtun lýkur kl. 22:30. 

 

Nemendur fara svo í páskafrí föstudaginn 7. apríl og skóli hefst aftur þriðjudaginn 18. apríl. 

Foreldrafélag Reykhólaskóla sér um kaffiveitingar.

Miðaverð: fullorðnir 1500 kr.

Börn 500 kr. Hlökkum til að sjá ykkur

Nemendur og starfsfólk Reykhólaskóla

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31