Tenglar

11. janúar 2017 | Umsjón

Árshátíð á þorra við Faxafen

Breiðfirðingabúð / Já 360.
Breiðfirðingabúð / Já 360.

Hin árlega árshátíð Breiðfirðingafélagsins á þorra verður haldin í Breiðfirðingabúð við Faxafen í Reykjavík laugardagskvöldið 21. janúar. Borðhald hefst kl. 19.30 en húsið verður opnað klukkutíma fyrr. Örn Árnason sér um veislustjórn en Hilmar Sverrisson og Kristján Snorrason leika fyrir dansi til klukkan eitt eftir miðnætti.

 

Miðaverð kr. 7.500. Þeir sem aðeins koma á ballið greiða kr. 2.000.

 

Miðapantanir hjá Þresti Elíassyni í síma 892 3068.

 

Miðasalan fer síðan fram í Breiðfirðingabúð sunnudaginn 15. janúar frá kl. 16.30 til 18.30.

 

Líka er hægt að sækja miða miðvikudaginn 18. janúar frá kl. 19 til 20.30.

 

Miðar sem ekki hafa verið sóttir í síðasta lagi 18. janúar verða seldir öðrum.

 

Félagsmenn Breiðfirðingafélagsins og gestir þeirra hafa forgang að miðum til 18. janúar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31