15. mars 2011 |
Áskorun um vegagerð: Nærri þúsund skrifuðu undir
Allir þingmenn NV-kjördæmis hafa verið boðaðir á fund á Patreksfirði 25. mars, þar sem ætlunin er að afhenda þeim undirskriftalista vegna Vestfjarðavegar nr. 60 um Reykhólahrepp. Á listana skrifuðu sig tæplega þúsund manns. Þar er skorað á þingmennina að styðja við framkomið frumvarp um uppbyggingu umrædds vegar. Á síðasta þingi Fjórðungssambands Vestfirðinga var ályktað að endurbætur á þessari leið væru algert forgangsmál í vegasamgöngum fjórðungsins.
Bréfið til þingmannanna þar sem þeir eru boðaðir til fundarins (pdf)
Sjá nánar:
26.01.2011 Vilja uppbyggingu Vestfjarðavegar um Reykhólahrepp