Áslaug í samstarfsnefnd um friðlandið í Flatey
Umhverfisstofnun hefur byrjað undirbúning að gerð verndar- og stjórnunaráætlunar fyrir friðlandið í Flatey á Breiðafirði. Slíkri áætlun er ætlað að fjalla um markmið verndunar svæðisins og hvernig stefnt skuli að viðhaldi verndargildis þess. Stjórnun friðlýstra náttúruminja er í umsjón Umhverfisstofnunar. Í erindi hennar varðandi þetta mál, sem tekið var fyrir á síðasta fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps, segir m.a.:
Við gerð verndar- og stjórnunaráætlana er lögð mikil áhersla á samráð og samstarf við hagsmunaaðila og óskar Umhverfisstofnun hér með eftir því að sveitarfélagið Reykhólahreppur tilnefni fulltrúa í samstarfsnefnd um gerð áætlunarinnar.
Sveitarstjórn samþykkti að tilnefna Áslaugu Bertu Guttormsdóttur sveitarstjórnarmann á Mávavatni á Reykhólum í samstarfsnefndina.