14. júní 2011 |
Assa opnar markaðinn í Nesi 17. júní
Handverksfélagið Assa í Reykhólahreppi opnar handverks-, nytja- og bókamarkað í Kaupfélagshúsinu í Króksfjarðarnesi kl. 16 á föstudaginn, 17. júní. Fyrir utan handverkið og bækurnar verða til sölu nytjahlutir af ýmsu tagi, svo sem búsáhöld, skrautmunir, fatnaður og skór. Þarna verður líka prjónahorn, leiksvæði fyrir börnin og kaffi á könnunni. Opið verður allar helgar í sumar kl. 13-18 og einnig á virkum dögum í júlímánuði á sama tíma.
Tekið er við hlutum á nytjamarkaðinn þegar opið er. Nýir handverksfélagar geta haft samband við Sóley í síma 895 7763 og Erlu Björk í síma 892 7897.
Sjá einnig:
04.06.2011 Handverkssalan á síðasta ári hálf önnur milljón
06.05.2011 Handverksfélagið Assa: Félagatalan tvöfaldaðist