Tenglar

7. apríl 2009 |

Ástand vegarins á þjóðleiðinni um Laxárdal óboðlegt

Byggðarráð Dalabyggðar skorar á vegamálastjóra að bjóða hið fyrsta út framkvæmdir við endurbætur á veginum um Laxárdal. Vegurinn um Laxárdal er þjóðleið sem tengir Vesturland við Norðvesturland en er ekki boðlegur eins og ástand hans er í dag. Tafir og forgangsröðun samgönguyfirvalda hafa um langt árabil bitnað á íbúum Dalabyggðar og er mál að linni. Færa þarf samgönguleiðir innan svæðisins frá því að vera moldarslóðar í það að geta talist boðlegar á 21. öldinni.

 

Þannig hljóðar bókun sem gerð var á fundi byggðarráðs Dalabyggðar í dag. Hún er send þingmönnum NV-kjördæmis, samgönguráðherra, vegamálastjóra og umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á NV-landi auk fjölmiðla.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31