Tenglar

26. september 2013 | vefstjori@reykholar.is

Athugasemdir við furðufréttir frá Reykhólum

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð á Reykhólum.
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð á Reykhólum.
1 af 3

„Þó að Einar hafi aðeins átt heima skamma hríð hér vestra má telja furðulegt að honum skuli ekki vera kunnugt um tilvist Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Barmahlíðar á Reykhólum. Fyrr á þessu ári voru 25 ár liðin frá því að fyrsta heimilisfólkið fluttist þar inn og var afmælisins minnst með veglegum hætti. Ýmis félög og samtök stóðu að því mikla framtaki sem bygging Barmahlíðar var á sínum tíma en núna er heimilið að fullu í eigu Reykhólahrepps.“

 

Þannig kemst Ingvar Samúelsson matráður í mötuneyti Barmahlíðar og Reykhólaskóla m.a. að orði í grein sem hann bað vefinn að birta, en hún er líka í Morgunblaðinu í dag undir sömu fyrirsögn og hér að ofan. Tilefni þessara orða Ingvars eru eftirfarandi ummæli Einars Sveins Ólafssonar framkvæmdastjóra í umræðum í Morgunblaðinu fyrir skömmu, sem Ingvar vitnar til:

 

„Á Reykhólum vantar okkur hjúkrunarheimili. Það er óviðunandi að veikt aldrað fólk þurfi að verja síðustu árunum fjarri heimabyggð,“ segir Einar Sveinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar á staðnum.

 

Í grein sinni víkur Ingvar einnig að ummælum Einars Sveins varðandi sjúkrabíla og löggæslumál og ölvunarakstur sem algengur sé í Reykhólahreppi.

 

Grein Ingvars í heild má lesa hér og undir Sjónarmið í valmyndinni vinstra megin.

 

Sjá einnig frétt varðandi umræðurnar í Morgunblaðinu:

► 14.09.2013 Ákvarðanir stjórnvalda oft byggðar á vanþekkingu

 

Athugasemdir

Guðmundur Magnússon, fstudagur 27 september kl: 08:59

Reykhólavefurinn er vinsamlega beðinn að birta eftirfarandi leiðréttingu vegna fréttar á vefnum í dag:

Í frásögn Morgunblaðsins af hringborðsumræðum um málefni Vestfjarða 14. september sl. var ranglega haft eftir Einari Sveini Ólafssyni framkvæmdastjóra Þörungarverksmiðjunnar á Reykhólum að ekki væri hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir aldraða á staðnum. Þvert á móti lagði Einar Sveinn áherslu á mikilvægi stærstu vinnustaðanna, Þörungarverksmiðjunnar, skólanna og hjúkrunarheimilisins, fyrir samfélagið á staðnum. Einar Sveinn er beðinn velvirðingar á þessum mistökum og þeim óþægindum sem þau hafa bakað honum. „Furðurfréttir af Reykhólum“, sem gerðar voru að umtalsefni í aðsendri grein í Morgunblaðinu á fimmtudaginn og á vefnum Reykholar.is á föstudaginn, skrifast alfarið á reikning undirritaðs blaðamanns.


Guðmundur Magnússon

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31