3. september 2019 | Sveinn Ragnarsson
Athugasemdir við tillögu um breytingu á Aðalskipulagi
Athugasemdir sem bárust vegna tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006 – 2018 vegna legu Vestfjarðavegar frá Bjarkalundi að Skálanesi eru aðgengilegar hér á síðunni til vinstri, undir Vestfjarðavegur (60) skýrslur og umsagnir.
Alls bárust 44 athugasemdir og umsagnir, og er stór hluti þeirra nokkuð samhljóða gegn ÞH leið, sem ekki kemur kannski á óvart.