12. júní 2020 | Sveinn Ragnarsson
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar 15. og 16. júní
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakosninga laugardaginn 27. júní 2020 fer fram á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, Reykhólum, mánudaginn 15. júní nk. milli kl. 15:00 og 16:00.
Utan kjörfundar atkvæðagreiðsla í Flatey,
fer fram í Bryggjubúð í Flatey, þriðjudaginn 16. júní kl. 16:30.
Kjósendur skulu hafa með sér persónuskilríki.
Patreksfirði, 11. júní 2020
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum