4. maí 2010 |
Atvest með ráðgjöf á Reykhólum
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða (Atvest) veitir einstaklingum og fyrirtækjum aðstoð við þróun viðskiptahugmynda. Félagið er með viðveru á Reykhólum dagana 4.-6. maí (þriðjudag til fimmtudags). Hægt er að bóka viðtalstíma í síma 691 4131 og með því að senda tölvupóst á netfangið viktoria@atvest.is. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viktoríu Rán Ólafsdóttur, ráðgjafa hjá Atvest.