8. febrúar 2016 |
Atvinna í boði
IMC og Nesskel í Króksfjarðarnesi eru að leita að starfskrafti. Um er að ræða eina og hálfa stöðu, annars vegar við pökkun á skel tvo daga í viku í fyrstu og meira í sumar, hins vegar við ýmislegt sem tengist veiði og ræktun á bláskel bæði á sjó og í landi. Fjölbreytt vinna. Möguleiki á húsnæði.
Nauðsynlegt er að hafa bílpróf og geta bjargað sér á ensku.
Vinnutími og laun eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefa Bergsveinn í síma 892 8418 og Sævar í netfanginu icelandicmusselcompany@gmail.com.