10. desember 2009 |
Atvinnuleysi minnst á Vestfjörðum
Atvinnuleysi er mest á Suðurnesjum, 13%, en minnst á Vestfjörðum, 2,8%. Nú eru 134 á skrá yfir atvinnulausa á Vestfjörðum, 72 karlar og 62 konur, en voru 113 í lok október. Skráð atvinnuleysi á landinu öllu í nóvember var 8% eða að meðaltali 13.357 manns og hefur þeim fjölgað um 675 manns frá mánuðinum áður. Á sama tíma á síðasta ári var atvinnuleysi á landinu öllu 3,3% eða 5.445 manns skráðir atvinnulausir.