Tenglar

10. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is

Atvinnulífskönnun - brottfluttir svari líka

Viktoría Rán Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða, sendi slóð á atvinnulífskönnun til birtingar hér á vefnum, þar sem svarað er gegnum netið. Ekki aðeins er fólk sem núna er búsett í Reykhólahreppi eindregið hvatt til að svara því sem þar er spurt um heldur brottfluttir líka.

 

Í inngangi segir:

  • Markmið könnunarinnar er að safna upplýsingum fyrir stefnumótunarvinnu sveitarfélaga í atvinnumálum, kanna viðhorf íbúa til atvinnumála svæðisins og skoða hvernig betur sé hægt að tryggja fyrirtækjum og einstaklingum uppbyggilegt rekstrarumhverfi.
  • Þátttaka í könnuninni er mikilvæg fyrir samfélagið. Niðurstöður verða nýttar til að móta sameiginlega framtíðarsýn og auðvelda samræmda ákvörðunartöku til að bæta þjónustu og vinna markvisst að því að styðja og efla atvinnulíf svæðanna.

 

 Smellið hér til að opna og svara (tekur aðeins fáeinar mínútur)

 

Vinsamlegast deilið þessu!

 

Athugasemdir

Viktoría Rán, mnudagur 11 mars kl: 09:13

Í dag fékk ég fyrirspurn um hvort það væri alveg öruggt að brottfluttir mættu svara könnuninni því spurningum væru einungis beint að íbúum sveitarfélagsins. Mér fannst þvi rétt að áretta að svo sé.

Könnuni er vissulega beint að íbúum og þannig var hún í raun sett upp. Hins vegar fengu við beiðni um að loka ekki á það að brottfluttir gætu komið með gott innlegg og frjóar hugymyndir líka. Við bættum því bið spurningu um póstfang neðst í könnuninni til að getað síðar aðgreint skoðanir þessa hóps.

Brottfluttir mega því endilega svara líka.

Kv.
Viktoría Rán

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31