Tenglar

8. maí 2015 |

Auglýsing um Vinnuskóla Reykhólahrepps 2015

Vinnuskólafólk í Hvanngarðabrekkunni (Kvenfélagsgarðinum) sumarið 2011.
Vinnuskólafólk í Hvanngarðabrekkunni (Kvenfélagsgarðinum) sumarið 2011.

Vinnuskóli verður starfandi á vegum Reykhólahrepps frá 8. júní til og með 22. júlí, með þeim fyrirvara að næg þátttaka náist. Unnið verður í tveimur lotum með vikuhléi á milli. Fyrri lotan verður 8. júní til 3. júlí og seinni lotan 13. júlí til 22. júlí. Flokksstjóri verður Jóhanna Ösp.

 

Rétt til starfa í Vinnuskólanum hafa ungmenni fædd 1999-2002, nemendur í Reykhólaskóla skólaárið 2014-15. Hámarksfjöldi nemenda verður 10. Helstu verkefni verða sem fyrr garðsláttur og hreinsun opinna svæða, svo og lítils háttar viðhaldsverkefni og annað tilfallandi. Gert er ráð fyrir að 15 ára og eldri vinni við vélorf og erfiðari störf.

 

Umsóknareyðublað til útprentunar er að finna hér allra neðst á síðunni í reitnum Umsóknir og reglur og jafnframt hér. Þar er reglur Vinnuskólans einnig að finna og jafnframt hér. Bæði eyðublaðið og reglurnar er líka hægt að fá á skrifstofu Reykhólahrepps.

 

Umsóknarfrestur er til 30. maí. Hægt er að skila umsóknum á skrifstofuna eða senda á skrifstofa@reykholar.is. Athugið, að foreldri eða forráðamaður þarf að undirrita umsóknina. Nánari upplýsingar í síma 430 3200.

 

Vinsemd og virðing eru höfð að leiðarljósi í Vinnuskólanum.

 

Launataxtar

13 ára – fædd 2002    532 kr.klst.

14 ára – fædd 2001    613 kr.klst.

15 ára – fædd 2000    703 kr.klst.

16 ára – fædd 1999    850 kr.klst.

 

Vinnutími er 5 stundir á dag, kl. 8.30-13.30.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31