Tenglar

2. júní 2016 |

Auglýsing um deiliskipulag fyrir Tröllenda í Flatey

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 14. apríl 2016 að auglýsa samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir Tröllenda í Flatey.

 

Á athafnasvæði við ferjuhöfn í Flatey er komið fyrir fjórum byggingarlóðum. Skilgreind er lóð fyrir gamlan geymsluskúr sem stendur vestan við fiskvinnsluhús, vatnstank, olíutank, fjarskiptamastur og lóð undir nýbyggingu norðaustast á svæðinu.

 

Við gildistöku þessa deiliskipulags fellur úr gildi deiliskipulag fyrir olíubirgðastöð og rafstöðvarhús í Flatey, sem samþykkt var 20. október 2000.

 

Skipulagsuppdráttur með greinargerð liggur frammi á skrifstofu Reykhólahrepps frá 2. júní til 15. júlí 2016. Gögnin má einnig sækja hér (pdf).

 

Athugasemdum skal skila skriflega fyrir 15. júlí á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum, eða í netfangið skrifstofa@reykholar.is, merktum Deiliskipulag fyrir Tröllenda í Flatey.

 

Reykhólum, 27. maí 2016.

Bogi Kristinsson Magnusen,

skipulags- og byggingarfulltrúi.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31