Tenglar

6. nóvember 2012 |

Auglýsing um náms- og tækjakaupastyrki til fatlaðra

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti fólks til að sækja um styrki skv. 27. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum. Byggðasamlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing.

 

Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.

 

Umsóknarfrestur er til 20. nóvember og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilissveitarfélags. Umsóknareyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa er að finna hjá viðkomandi félagsþjónustu.

 

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31