Auglýsing um útboð í Reykhólahreppi
Sveitarfélagið Reykhólahreppur, Maríutröð 5a, 380 Reykhólum, óskar eftir tilboðum í verkið jarðvinna og yfirborðsfrágangur á lóð Grunnskólans á Reykhólum. Verkið er fólgið í jarðvinnu, fyllingum, hellulögnum, grjóthleðslu og uppsetningu á leiktækjum. Tilboðið skal gert á grundvelli útboðslýsingar sem byggir á útboðsgögnum frá Landmótun í mars 2015. Verktími er 1. júní til 20. ágúst 2015.
Útboðsgögnin eru til sýnis og afhendingar á skrifstofu Reykhólahrepps frá og með föstudeginum 15. maí 2015.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, 380 Reykhólum, í viðurvist bjóðenda þann 26. maí 2015 kl. 14.
Útboðsgögnin er einnig hægt að fá á rafrænu formi og eru þeir sem það velja vinsamlega beðnir um að staðfesta það með tölvupósti á bogi@dalir.is og sveitarstjori@reykholar.is.
Reykhólum, 15. maí 2015.
Sveitarstjóri Reykhólahrepps.