28. júní 2010 |
Auglýsing um viðtöku framboðslista
Kjörstjórn Reykhólahrepps veitir viðtöku framboðslistum til sveitarstjórnarkosninga í Reykhólahreppi, sem fram eiga að fara þann 24. júlí 2010, á heimili Halldórs D. Gunnarssonar í Króksfjarðarnesi laugardaginn 3. júlí kl. 10 til 12 árdegis. Þetta kemur fram í auglýsingu frá kjörstjórninni.