Auglýsing varðandi forsetakjör
Kjördeild í Reykhólahreppi við forsetakjörið 25. júní verður á skrifstofu hreppsins að Maríutröð 5a á Reykhólum og stendur kjörfundur kl. 10-18. Kjörskrá liggur frammi á skrifstofunni. Jafnframt getur fólk fundið hér hvar það er á kjörskrá og hverjir hafa kosningarétt.
Sjá einnig hér, þar sem jafnframt er tengill á auglýsingu frá Sýslumanninum á Vestfjörðum varðandi kosningu utan kjörfundar í Flatey, á hreppsskrifstofunni á Reykhólum og Dvalarheimilinu Barmahlíð. Í auglýsingunni eru líka upplýsingar varðandi heimild til að greiða atkvæði í heimahúsi ef kjósandi getur ekki sótt kjörfund vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar.
Kosningar til embættis forseta Íslands fara að öðru leyti fram í samræmi við Lög um framboð og kjör forseta Íslands. Um kosningaathöfnina sjálfa, sem og undirbúning hennar, atkvæðagreiðslu utan kjörstaða og á kjörstað, fer að öðru leyti samkvæmt Lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á.
Kosningavefur innanríkisráðuneytisins (með margvíslegum upplýsingum um forsetakjörið).
Kjörstjórn Reykhólahrepps skipa Steinunn Ó. Rasmus á Reykhólum, formaður, Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli og Leifur Z. Samúelsson í Djúpadal. Þau minna kjósendur sérstaklega á að muna eftir persónuskilríkjum, eins og áskilið er í lögum.