Auglýst breyting á deiliskipulagi í Flatey
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 8.febrúar 2018 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi við Tröllenda í Flatey í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að skilmálum fyrir lóð A1 Tröllenda er breytt.
Lóð er stækkuð til vesturs og minnkuð til suðurs, en helst stærð lóðar óbreytt.
Heildar byggingarmagn hússin er aukið úr 120m² í 142m² ásamt 20m² geymsluskúrs.
Þakhalla er breytt og mega húsin vera með þakhalla 5-35°.
Mænisstefna mun taka mið af landi, þannig falla húsin betur inn í umhverfið.
Skipulagsuppdrættir og greinargerð liggja frammi á skrifstofu Reykhólahrepps frá 22. febrúar 2018. Ennfremur verða gögnin aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.reykholar.is.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a 380 Reykhólar eða á netfangið byggingarfulltrui@dalir.is fyrir 6. apríl 2018.
Reykhólum, 14. febrúar 2018
Bogi Kristinsson Magnusen
Skipulags- og byggingarfulltrúi