6. september 2013 | vefstjori@reykholar.is
Auglýst eftir bókaverði við safnið á Reykhólum
Laust er starf bókavarðar við Héraðsbókasafn Reykhólahrepps á Reykhólum. Starfið felst í umsjón með safninu og þeirri þjónustu sem slíku fylgir. Á dagskrá er að skrá safnið og nútímavæða það. Um er að ræða 10% hlutastarf, tvo tíma í senn tvö kvöld í viku og kl. 11-13 einn laugardag í mánuði. Starfið er laust frá 15. september. Skilyrði er að hafa náð 20 ára aldri.
Hæfni sem krafist er:
- Nákvæmni í starfi og tölvukunnátta
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 434 7880 eða netfanginu sveitarstjori@reykholar.is. Upplýsingar um launakjör gefur launafulltrúi í sama síma eða netfanginu erla@reykholar.is. Launakjör fara eftir kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og FosVest eða VerkVest.
Umsóknum skal skila skriflega til Reykhólahrepps.
- Sveitarstjóri.