Tenglar

12. ágúst 2014 | vefstjori@reykholar.is

Auglýst eftir hjúkrunarforstjóra á Barmahlíð

Barmahlíð á Reykhólum.
Barmahlíð á Reykhólum.

Reykhólahreppur auglýsir stöðu hjúkrunarforstjóra hjúkrunar- og dvalarheimilisins Barmahlíðar. Þar eru 11 starfsmenn. Heimilið hefur pláss fyrir 13 í hjúkrunarrýmum og 2 i dvalarrýmum. Lagt er upp með að veita íbúum heimilisins ávallt bestu þjónustu á hverjum tíma og vera jafnframt aðlaðandi starfsvettvangur. Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi með faglega sýn í öldrunarmálum.

 

 

Starfs- og ábyrgðarsvið hjúkrunarforstjóra:

  • Fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu
  • Umsjón með og ábyrgð á fjármálum, rekstri og stjórnun heimilisins
  • Starfsmannamál, þ.m.t.umsjón með ráðningum og vaktaplönum
  • Hjúkrunarforstjóri er ábyrgur gagnvart stjórn Barmahlíðar

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólagráða í hjúkrunarfræði
  • Framhaldsmenntun og reynsla í geðhjúkrun æskileg
  • Þekking á RAI-mati
  • Farsæl stjórnunarreynsla og stjórnunarhæfni áskilin
  • Reynsla og/eða þekking af rekstri
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og góður samstarfsvilji

 

Um 85% starfshlutfall er að ræða. Viðkomandi á kost á 15% stöðu hjúkrunarfræðings á heilsugæslu HVE á Reykhólum. Launakjör eru samkvæmt samningum hjúkrunarfræðinga og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Starfinu fylgir leiguíbúð á efri hæð Barmahlíðar.

 

Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.

 

Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

 

Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Erik Christianson Chaillot (erik.chaillot@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.

 

Athugasemdir

Ólína Kristín Jónsdóttir, mivikudagur 13 gst kl: 22:17

Velti fyrir mér afhverju er auglýst eftir geðhjúkrunarfræðingi en ekki öldrunarhjúkrunarfræðingi, hefði þótt það mun vænni kostur á hjúkrunarheimili. Með fullri virðingu fyrir geðhjúkrun :)

Áslaug B. Guttormsdóttir, fimmtudagur 14 gst kl: 11:26

Er sammála þér, Ólína Kristín, að það hefði mátt koma betur fram í auglýsingunni að fyrst og fremt er óskað eftir hjúkrunarfræðingi með þekkingu/reynslu af öldrunarhjúkrun en þekking og/eða reynsla af geðhjúkrun væri ótvíræður kostur.
Hjúkrunarfræðingar athugið að verið er að auglýsa 100 % samsett starf hjúkrunarfræðings, þ.e. 85% starf hjúkrunarfræðings á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíðog 15% starf heilsugæsluhjúkrunarfræðings. Áhugasamir hjúkrunarfræðingar, hikið ekki við að sækja um spennadi starf hér á Reykhólum! Ég tek alla vegana vel á móti nýjum hjúkrunarfræðingi.

Ólína Kristín, fimmtudagur 14 gst kl: 13:23

Takk fyrir útskýringuna Áslaug. Það kemur nefnilega hvergi fram að viðkomandi eigi að hafa reynslu eða þekkingu í öldrun. Það er fullt af flottum hjúkrunarfræðingum til sem hafa framhaldsmenntun í öldrun :)
Ég vona svo sannarlega að þið fáið fullt af flottum umsóknum :)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31