18. september 2020 | Sveinn Ragnarsson
Auglýst eftir hjúkrunarforstjóra í Barmahlíð
Reykhólahreppur auglýsir stöðu hjúkrunarforstjóra Barmahlíðar frá og með 1. desember 2020.
Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi með faglega sýn á öldrunarmál. Um 100% starf er að ræða.
Starfssvið:
- Fagleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu.
- Umsjón með rekstri og stjórnun heimilisins.
- Starfsmannamál og vaktaplönun.
- Hjúkrunarforstjóri er ábyrgur gagnvart stjórn Barmahlíðar.
Menntun, hæfni og reynsla:
- Háskólagráða í hjúkrunarfræði.
- Framhaldsmenntun og góð reynsla í geðhjúkrun æskileg.
- Þekking á RAI-mati.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og góður samstarfsvilji.
- Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2020.
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð er með 14 hjúkrunarrými og 2 dvalarrými og þar starfa að jafnaði 14 starfsmenn. Lagt er upp með að veita íbúum heimilisins ávallt bestu þjónustu á hverjum tíma og vera jafnframt aðlaðandi starfsvettvangur.
Húsnæði fylgir starfinu.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 896-3629. Umsókn með ferilskrá berist á netfangið sveitarstjori@reykholar.is