Auglýst eftir kennurum að Reykhólaskóla
Reykhólaskóli óskar eftir að ráða grunnskólakennara.
- Umsjónarkennari með miðstigi. Um er að ræða kennslu í bóklegum greinum, íslensku, stærðfræði, samfélagsfræði, upplýsingamennt o.fl.
- Verkgreinakennari. Um er að ræða kennslu í smíði, myndmennt og heimilisfræði.
Hæfniskröfur*)
- Réttindi til kennslu í grunnskóla
- Vald á fjölbreyttum kennsluaðferðum
- Áhugi á kennslu og vinnu með börnum
- Frumkvæði og samstarfsvilji
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Gleði og umhyggja
- Reglusemi og samviskusemi
*) Ef ekki berast umsóknir frá grunnskólakennurum sem uppfylla hæfniskröfur má ráða leiðbeinanda tímabundið til eins árs.
Leitað er eftir fólki með góða skipulagshæfileika og hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af teymisvinnu og samkennslu og áhugi á þróunarstarfi er mikilvæg. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.
Laun samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Frekari upplýsingar gefur Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir skólastjóri í síma 849 8531 og 434 7731 eða í netfanginu skolastjori@reykholar.is. Umsóknum með ferilskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur skal skila í sama netfang. Öllum umsóknum verður svarað.
Reykhólaskóli á Reykhólum við Breiðafjörð er sameinaður grunnskóli og leikskóli með 72 nemendur á aldrinum 1 árs til 16 ára. Einkunnarorð skólans eru Vilji er vegur. Lögð er áhersla á skapandi starf og nám í gegnum leik. Skólinn er þátttakandi í Grænfánaverkefninu. Við skólann starfar 20 manna samheldinn og skapandi hópur. Skólinn er ágætlega búinn tækjum og tólum.
Í Reykhólahreppi búa tæplega 280 manns, þar af liðlega 120 manns í þéttbýliskjarnanum á Reykhólum. Á staðnum er öll almenn þjónusta, verslun, glæsilegt íþróttahús og sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar og mikil náttúrufegurð.