Tenglar

5. júní 2008 |

Auglýst eftir myndum af gömlum búvélum

Guðmundur á Grund undir stýri á Farmall Cub.
Guðmundur á Grund undir stýri á Farmall Cub.

Á Grund í Reykhólasveit hefur á undanförnum árum orðið til myndarlegt safn gamalla dráttarvéla og annarra búvéla frá fyrri tíð. Margar vélanna eru uppgerðar og gangfærar og aðrar er smátt og smátt verið að gera upp. Mestan heiðurinn af þessu vélasafni á Unnsteinn Ólafsson á Grund, sem hefur einnig ásamt Guðmundi bróður sínum og Arnóri Grímssyni í Króksfjarðarnesi dregið saman mikinn fróðleik um fyrstu dráttarvélar á hverjum bæ í Reykhólahreppi. Áformað er að koma út riti með þessum fróðleik ásamt þeim myndum af elstu vélunum sem unnt verður að afla.

 

Væntanlega leynast í gömlum albúmum gamlar ljósmyndir af dráttarvélum og öðrum búvélum í héraðinu. Þess er hér með farið á leit, að allir sem luma á slíkum myndum láni þær til skönnunar og birtingar. Bæði er hægt að hringja t.d. í Guðmund á Grund (892 3328) eða senda netpóst til þeirra bræðra eða hingað á vefinn.

 

Frá því var greint hér á vefnum í vor, að Búvélasafninu á Grund hefði verið veittur styrkur frá Menningarráði Vestfjarða. Styrkveitingin er vitnisburður um það álit ráðsins, að hér sé um menningarsögulega starfsemi að ræða og merkilegt framlag til atvinnusögu héraðsins.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31