13. júní 2014 | vefstjori@reykholar.is
Auglýst eftir starfsmanni í framleiðslu Norðurs & Co
Við hjá Norður & Co leitum að fólki til þess að vinna í framleiðslunni okkar á Reykhólum. Um er að ræða spennandi starf hjá ört vaxandi nýsköpunarfyrirtæki. Við tökum vel í allar umsóknir og hvetjum konur sem karla til þess að sækja um starfið.
Starfssvið:
- Að sinna framleiðslu á vörum fyrirtækisins, þar á meðal Norðursalti, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum sem tengjast framleiðslunni.
Kröfur og óskir um hæfni:
- Sjálfstæð vinnubrögð og löngun til að læra nýja hluti.
- Að eiga auðvelt með mannleg samskipti.
- Að geta bjargað sér að eigin frumkvæði og hræðast ekki að ganga í beint verk.
- Elska salt.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2014.
Upplýsingar veitir Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri, í netfanginu gardar@nordurco.com og í síma 865 3620.