Tenglar

8. febrúar 2016 |

Auglýst eftir sumarstarfsfólki á Reykhólum

Harpa Eiríksdóttir í afgreiðslu Báta- og hlunnindasýningarinnar.
Harpa Eiríksdóttir í afgreiðslu Báta- og hlunnindasýningarinnar.

Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum auglýsir eftir fólki í fjölbreytt hlutastörf sumarið 2016. Vaktavinna. Laun samkvæmt kjarasamningi Verkalýðsfélags Vestfirðinga.

 

Eftirtalin störf eru í boði:

 

Starfsmaður í 50-75% stöðu, 20 ára aldurstakmark.

  • Vinnutími kl. 10.45-17.30 og einhver kvöld yfir sumarið.
  • Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir, duglegir og samviskusamir og hafi gaman af samskiptum við fólk, séu kunnugir Reykhólahreppi og því sem hann hefur að bjóða.
  • Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir kunnáttu í erlendum tungumálum, þá sérstaklega ensku. Reynsla af þjónustustörfum er kostur.
  • Hlutverk starfsmanna Báta- og hlunnindasýningarinnar er að afgreiða á sýningunni og í minjagripaverslun og veita leiðsögn um sýninguna þegar þess er þörf. Einnig sjá starfsmenn um bakstur og afgreiðslu á kaffihúsinu okkar, sem er að hefja sitt fjórða starfsár. Þeir sjá líka um uppgjör, skýrsluhald og skráningar á munum og almenn störf á upplýsingamiðstöð sem er á sama stað.

 

Óskað er eftir aðila

  • sem hefur áhuga á að aðstoða við markaðssetningu og skipulagningu viðburða sem haldnir eru á sýningunni. Þar er um að ræða Bátadaga, hlutdeild sýningarinnar í Reykhóladögum og fleira.

 

Unglingar (13-16 ára), nokkur störf og mismunandi starfshlutföll í boði.

  • Vinnutími kl. 10.30-17.30, getur líka verið einhver kvöld og breytilegur á Reykhóladögum.
  • Tilgreinið í umsókn hversu háu starfshlutfalli sé óskað eftir og hvaða frídögum væri óskað eftir.
  • Starfið felst í því að halda útisvæði hreinu, baka, afgreiða í eldhúsi, annast þrif og vinna létt tilfallandi störf.
  • Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir, duglegir og samviskusamir og hafi gaman af samskiptum við fólk, séu kunnugir Reykhólahreppi og því sem hann hefur að bjóða.

 

Báta- og hlunnindasýningin er opin alla daga sumarið 2016 frá 1. júní til 31. ágúst.

 

Umsóknarfrestur er til 20. febrúar. Umsóknir sendist í netfangið info@reykholar.is. Ef einhverjar spurningar vakna má senda þær í sama netfang.

 

Harpa Eiríksdóttir,

framkvæmdastjóri Báta- og hlunnindasýningarinnar á Reykhólum. 

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31