Tenglar

29. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Auglýst eftir sumarstarfsmanni

Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf sumarið 2014. Um er að ræða 75% stöðu. Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir, duglegir og samviskusamir og hafi gaman af samskiptum við fólk. Jafnframt að þeir hafi góða þekkingu á Reykhólahreppi og því sem hann hefur að bjóða. Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir kunnáttu í erlendum tungumálum, þá sérstaklega ensku, og reynsla af þjónustustörfum er kostur, segir í tilkynningu frá Hörpu Eiríksdóttur framkvæmdastjóra sýningarinnar. Þar segir ennfremur:

 

Hlutverk starfsmanna Báta- og hlunnindasýningarinnar er að afgreiða á sýningunni og í minjagripaverslun og veita leiðsögn um sýninguna eftir þörfum. Einnig munu starfsmenn sjá um bakstur og afgreiðslu á kaffihúsinu okkar sem er að hefja sitt annað starfsár. Líka að sjá um uppgjör, skýrsluhald og skráningar á munum og almenn störf á upplýsingamiðstöð sem er á sama stað.

 

Óskað er eftir aðila sem hefur áhuga á að aðstoða við markaðssetningu og skipulagningu viðburða sem haldnir eru á sýningunni, svo sem Bátadögum, hlut sýningarinnar í Reykhóladögum og fleiru.

 

Vinnutíminn er frá kl. 10.30 til 17.30/18.30. Báta- og hlunnindasýningin er opin alla daga sumarið 2014 frá 1. júní til 31. ágúst.

 

Umsóknarfrestur er til 20. febrúar. Óskað er eftir skriflegum umsóknum í netfangið info@reykholar.is. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að senda þær í sama netfang.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31