Tenglar

7. apríl 2015 |

Auglýst eftir sumarstarfsmanni

Báta- og hlunnindasýningin á Reykhólum auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf sumarið 2015. Um er að ræða 75-100% stöðu. Unnið er í lotum ef þess er óskað. Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir, duglegir og samviskusamir og hafi gaman af samskiptum við fólk. Þekking á Reykhólahreppi og því sem hann hefur að bjóða er skilyrði. Jafnframt er mikilvægt að umsækjendur búi yfir kunnáttu í erlendum tungumálum, sérstaklega ensku. Reynsla af þjónustustörfum er kostur.

 

Hlutverk starfsmanna Báta- og hlunnindasýningarinnar er að afgreiða á sýningunni og í minjagripaverslun og veita leiðsögn um sýninguna þegar þess er þörf. Einnig sjá starfsmenn um bakstur og afgreiðslu á kaffihúsinu á sýningunni, sem er að hefja sitt þriðja starfsár. Þeir þurfa líka að sjá um uppgjör, annast skráningar á munum og vinna almenn störf á upplýsingamiðstöðinni sem er á sama stað.

 

Óskað er eftir aðila sem hefur áhuga á því að aðstoða við markaðssetningu og skipulagningu viðburða sem haldnir eru á sýningunni. Þar er um að ræða Bátadaga, hlutdeild sýningarinnar í Reykhóladögum og fleira.

 

Vinnutíminn er frá kl. 10.30 til 17.30 eða 18.30. Báta- og hlunnindasýningin er opin alla daga frá 1. júní til 31. ágúst sumarið 2015.

 

Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Umsóknir berist í netfangið info@reykholar.is. Ef einhverjar spurningar vakna má senda þær í sama netfang.

 

- Harpa Eiríksdóttir,

framkvæmdastjóri Báta- og hlunnindasýningarinnar á Reykhólum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31