29. desember 2010 |
Auglýst eftir sundlaugarverði við Grettislaug
Reykhólahreppur auglýsir laust starf sundlaugarvarðar. Um er að ræða hlutastarf þar sem unnið er aðra hverja viku. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og vera reglusamur og sjálfstæður í starfi. Umsækjandi þarf að kunna hjálp í viðlögum og hafa gilt skírteini frá RKÍ.
Allar upplýsingar gefur Dísa í Grettislaug í síma 434 7738. Umsóknir berist skrifstofu Reykhólahrepps. Starfið er laust strax um áramót.