2. apríl 2014 | vefstjori@reykholar.is
Auglýst eftir sundlaugarvörðum í Grettislaug
Sundlaugarverði vantar í Grettislaug á Reykhólum frá 1. júní. Bæði er óskað eftir fólki í fast starf á vaktir og tímabundin störf í sumar. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri. Haldið verður haldið björgunarpróf fyrir umsækjendur fyrir sumaropnun laugarinnar.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a á Reykhólum eða í netfangið skrifstofa@reykholar.is fyrir 30. apríl.