Tenglar

23. apríl 2014 | vefstjori@reykholar.is

Auglýst eftir umsjónarmanni við Grettislaug

Reykhólahreppur auglýsir starf umsjónarmanns Grettislaugar á Reykhólum. Viðkomandi þarf að geta byrjað sem fyrst. Umsækjandi þarf að hafa náð 25 ára aldri og vera ábyrgur og skipulagður í verkum. Starfið felst í allri umsjón með rekstri laugarinnar, ráðningu starfsfólks, skipulagningu vakta, innkaupum, uppgjöri og fleiru. Starfshlutfallið er að meðaltali um 50% yfir árið. Grettislaug er opin allt árið en lengur á sumrum en vetrum.

 

Hafið samband við skrifstofu Reykhólahrepps í síma 434 7880 eða í netfanginu skrifstofa@reykholar.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31