2. febrúar 2011 |
Auglýst eftir umsóknum um styrki úr fornleifasjóði
Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001. Úthlutunarreglur sjóðsins er að finna hér á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis. Veittir verða styrkir til verkefna sem stuðla að varðveislu og rannsóknum á fornleifum og forngripum. Á fjárlögum 2011 eru 17,2 milljónir til ráðstöfunar. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2011.
Umsóknir í fjórum eintökum sendist:
Stjórn fornleifasjóðs, mennta og menningarmálaráðuneyti,
Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík