1. maí 2017 | Sveinn Ragnarsson
Auglýst er eftir starfsfólki við Grettislaug
Grettislaug á Reykhólum óskar eftir sumarstarfsfólki:
Laust er til umsóknar ca.100% starfshlutfall eða eftir samkomulagi, frá 1. júní – 31. ágúst. Leitað er að einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa þekkingu í skyndihjálp og standast kröfur sem gerðar eru til sundvarða sem felast í því að taka sundpróf samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum.
Allar nánari upplýsingar gefur Jónatan Jónsson umsjónarmaður Grettislaugar í síma 434-7738 á opnunartíma laugarinnar.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á vef sveitarfélagsins.