„Aukin áhrif í Evrópusamstarfi“
„Við erum frjáls að því að velja okkur leið, án utanaðkomandi þvingana. Og við getum haft áhrif og styrkt stöðu okkar, í góðu samstarfi við Evrópusambandið án aðildar, á grundvelli EES-samningsins. Þetta er kjarni þingsályktunartillögu sem ég var fyrsti flutningsmaður að á Alþingi ásamt 13 öðrum þingmönnum, sem nú sitja í þremur þingflokkum.“
Þetta segir Einar Kristinn Guðfinnsson, alþm. NV-kjördæmis og fyrrv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í grein sem hann sendi vefnum til birtingar. Þar segir einnig:
Nú hefur þessi tillaga verið afgreidd samhljóða með svohljóðandi hætti: Alþingi ályktar að efla beri þátttöku stjórnmálamanna og embættismanna í hagsmunagæslu tengdri Evrópusamstarfi með það að markmiði að auka áhrif Íslands á ákvarðanir á vettvangi Evrópusamstarfs.
Grein Einars Kristins í heild má lesa hér eða undir Skoðanir í valmyndinni vinstra megin með fyrirsögninni hér fyrir ofan.