5. nóvember 2010 |
Badda á Hofsstöðum jarðsungin kl. 14
Bjargey Kristrún Arnórsdóttir heitin, Badda á Hofsstöðum, verður jarðsungin frá Reykhólakirkju kl. 14 á morgun, laugardag. Minningarathöfn var í Fossvogskapellu í Reykjavík í gær. Sjá nánar hér:
Kirkjuskólinn verður í matsal Reykhólaskóla kl. 11 í fyrramálið.
Á Allra heilagra messu á sunnudag verður messa í Reykhólakirkju kl. 13.30 og síðan helgistund í Barmahlíð kl. 14.30.
Prestur er sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, organisti er Viðar Guðmundsson og kór Reykhólaprestakalls syngur.