Bæði Andrea og karlarnir með tifandi prjóna
Fréttin á Reykhólavefnum í desember um sérstakt fólksfjölgunarframtak oddvita Reykhólahrepps vakti mikla athygli. Meðal annars birtist hún á hálfri síðu í svo grafalvörugefnu riti sem tímaritinu Sveitarstjórnarmálum - og auðvitað í léttari miðlum líka. Í framhaldi af frétt Reykhólavefjarins í fyrradag var síðan rætt við Andreu oddvita á vefnum bb.is í morgun og í síðdegisútvarpi Rásar 2 á RÚV í dag.
Einn viðmælandi Reykhólavefjarins sagði eftir að hafa hlustað á viðtalið á RÚV í dag, að Andrea Björnsdóttir hljóti að vera skemmtilegasti oddviti landsins - og þótt víðar væri leitað. Og jafnframt sá framtakssamasti hvað barneignir í sínu sveitarfélagi varðar.
Nú er bara að vona að bæði karlarnir í Reykhólahreppi og oddvitinn haldi áfram að láta prjónana tifa.
Sjá (og heyra):
► RÚV 05.02.2013 Prjónandi oddviti vill fleiri börn
► bb.is 05.02.2013 Prjónaskapnum linnir ekki í bráð hjá Andreu
Sjá nánar:
► Reykhólavefurinn 12.12.2012 Fjölgar í hreppnum: Oddvitinn stendur sína plikt
► Reykhólavefurinn 03.02.2013 Nóg að gera í prjónaskapnum hjá oddvitanum