Tenglar

15. apríl 2009 |

Bændur efna til landbúnaðardags kosningabaráttunnar

Mynd af vefnum bondi.is.
Mynd af vefnum bondi.is.

Bændur hafa boðað til opinna funda í tengslum við alþingiskosningarnar á fjórum stöðum á landinu annað kvöld, fimmtudagskvöldið 16. apríl. Öllum framboðum er boðið að senda sína fulltrúa og ræða um landbúnaðarmál við bændur, starfsfólk í landbúnaðargeiranum og aðra áhugasama fundargesti. Fundirnir hefjast allir kl. 20.30 og verða haldnir á Hótel Selfossi, í Hlégarði í Mosfellsbæ, á Hótel Borgarnesi og á Hótel KEA á Akureyri.

Tilvonandi alþingismenn verða spurðir ákveðinna spurninga sem m.a. snúa að fæðuöryggi, atvinnu í dreifbýli og hvaða stefnu þeirra flokkur hafi í landbúnaðarmálum. Forystumenn bænda halda stutt framsöguerindi en síðan munu frambjóðendur halda tölu um sín áherslumál og afstöðu gagnvart íslenskum landbúnaði. Á eftir verða umræður þar sem frambjóðendur sitja í pallborði.

Að tilefni kosninganna hafa Bændasamtökin gefið út bækling sem tengist viðhorfum bænda gagnvart ESB, en sem kunnugt er hafa þau beitt sér gegn því að farið verði í aðildarviðræður við sambandið. Þá verður dreift á fundunum stuttu riti um mikilvægi landbúnaðar fyrir samfélagið þar sem fjallað er um fæðuöryggi, atvinnumál og ekki síst þær áskoranir sem landbúnaður stendur frammi fyrir á heimsvísu.

 

Sjá einnig:

Bændasamtök Íslands

Landbúnaður skiptir máli (pdf-skjal)

Íslenskur landbúnaður og Evrópusambandið (pdf-skjal)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31