6. nóvember 2022 | Sveinn Ragnarsson
Bakki í Bændablaðinu
Í Bændablaðinu er dálkur sem ber yfirskriftina Bærinn okkar. Í nýjasta tölublaðinu er bærinn Bakki í Geiradal. Greinin er á bls. 48.
Hjónin Árný og Baldvin fluttu að Bakka í maí árið 2014 með 40 kindur ásamt lömbum. Síðan þá hafa þau unnið að því að stækka og bæta fjárstofninn í um 530 fjár á vetrarfóðrum.
Núna eru þau með féð á Bakka og á nágrannabænum Gautsdal, en láta sig dreyma um að stækka fjárhúsin heima til að geta haldið allan bústofninn þar.