12. janúar 2022 | Sveinn Ragnarsson
Baldur 12.1.2022 - ófært
Skipstjóri Baldurs hefur legið yfir stöðu mála í morgun og núna er staðan sú að við erum að fara í að senda út tilkynningu þess efnis að ferð dagsins verður felld niður vegna ölduhæðar og veðurs. Þetta er staðan sem við erum að horfa á í því sambandi, mikil ölduhæð og veðurspá óhagstæð.
Þetta hefur klárlega áhrif á ferðaplön og því erum við klár í að sigla aukaferð í fyrramálið, fimmtudag, er aðstæður verða betri, ef það gengur eftir verður það tilkynnt og kynnt vel eins og áður.