Bandarísk stúlka leitar eftir vist
Ung bandarísk stúlka hefur mikinn hug á því að komast til dvalar og vinnu á góðu sveitaheimili hér vestra seinni hluta vetrar. Hún heitir Anna, er háskólanemi og hefur dvalist á Sólheimum í Grímsnesi um sex vikna skeið á vegum samtaka sem heita CELL - Center for Ecological Living and Learning. Hún fer af landi brott núna í lok nóvember en stefnir að því að koma aftur til landsins snemma á nýju ári. Af einhverjum ástæðum hefur hún fengið mikinn áhuga á þessum landshluta og þess vegna var umsjónarmaður þessa vefjar beðinn um að leita eftir vist fyrir hana í héraðinu. Ekki mun hún gera miklar kaupkröfur fyrir utan fæði og húsnæði. Betra þætti henni ef einhver á heimilinu gæti bjargað sér á enskri tungu.
Fólk hér um slóðir sem gæti hugsað sér að fá stúlkuna til vistar með þessum hætti frá marsmánuði og fram á vorið er beðið að hafa samband við undirritaðan annað hvort netleiðis eða í síma (434 7735 eða 892 2240).