13. júní 2012 |
Bankinn búinn að koma sér fyrir á Reykhólum
Í dag kom það sem á hafði vantað af búnaði í vistarveru Landsbankans í húsakynnum Reykhólahrepps við Maríutröð á Reykhólum. Eins og fram hefur komið verður Sóley Vilhjálmsdóttir þar með bankaþjónustu á miðvikudögum kl. 13-16.
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir tók meðfylgjandi myndir á símann. Á myndum nr. 1 og 2 er verið að bera dótið inn en á mynd nr. 3 er allt komið á sinn stað.
► Landsbankinn: Búnaði komið upp á Reykhólum
► 40 ár frá opnun bankaútibús í Króksfjarðarnesi