15. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Barðstrendingafélagið sjötugt
Barðstrendingafélagið í Reykjavík var stofnað þennan dag, 15. mars, árið 1944 og fagnar sjötugsafmælinu í Lionssalnum Lundi í Kópavogi í kvöld. Fagnaðurinn hefst með fordrykk á undan veisluhlaðborði og skemmtiatriðum ættuðum að vestan en síðan er dansleikur.
Tilvalið gæti verið að óska félaginu til hamingju með afmælið og árna því heilla í framtíðinni á Facebooksíðu þess.