Tenglar

26. febrúar 2015 |

Barðstrendingar og Breiðfirðingar eigast við

Annað kvöldið af fjórum í Spurningakeppni átthagafélaganna 2015 verður í kvöld, fimmtudag, og hefst kl. 20. Sem fyrr er keppnin haldin í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14 (fyrir ofan Bónus). Meðal þeirra sem keppa í kvöld eru lið Barðstrendingafélagsins og Breiðfirðingafélagsins. Þar sem um útsláttarkeppni er að ræða er ljóst að annað þeirra mun falla úr leik.

 

Í síðustu viku var sagt frá keppninni í Fréttablaðinu (sjá mynd) og rætt við Gauta Eiríksson frá Stað, sem er eins og áður höfundur spurninga, spyrjandi og dómari.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31