Barmahlíðardagurinn á Reykhólum í dag
Barmahlíðardagurinn á Reykhólum er í dag, sumardaginn fyrsta, með fjölbreyttri dagskrá fyrir unga sem aldna. Meðal atriða má nefna handavinnusýningu á dvalarheimilinu Barmahlíð, vöfflur og kaffi á borðum hjá unglingunum í Reykhólaskóla, skólagól (hvað sem það nú er) og skemmtidagskrá með Jógvan Hansen og fyrirtækjakeppni á sparkvellinum. Lögreglan verður með hjólaskoðun og brunabíllinn verður til sýnis. Grillmeistarar Lionsklúbbsins taka til hendinni í kvöld og frítt verður í Grettislaug.
Dagskrána í heild og tímasetningar má skoða hér (pdf).
Horfur eru á góðu sumri í héraðinu ef marka má þjóðtrúna gömlu. Vetur og sumar frusu saman á Reykhólum í nótt. Klukkan fimm var hitinn reyndar hálfri gráðu yfir frostmarki á mæli sjálfvirku veðurstöðvarinnar og klukkan átta var hann kominn niður í 0,3 stig. Slíkir mælar eru í tveggja metra hæð yfir jörðu og það gerir gæfumuninn. Niðri við jörð fór hitinn undir frostmark. Eins og til að árétta þetta fór hann svo að snjóa svolítið í mjög kyrru veðri laust fyrir klukkan sex í morgun.
Samkvæmt veðurspá gildir líklega hið fornkveðna um sumardaginn fyrsta á Reykhólum að þessu sinni:
Veðrið er hvorki vont né gott,
varla kalt og ekki heitt.
Það er hvorki þurrt né vott,
það er svo sem ekki neitt.