Tenglar

28. desember 2011 |

Barnaleikrit með söngvum á Hólmavík

1 af 4

Núna kringum áramótin sýnir Leikfélag Hólmavíkur leikritið Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttur. Þetta er barnaleikrit með söngvum fyrir gesti á öllum aldri og leikarar alls 22, flestir á grunnskólaaldri en reynsluboltar úr félaginu taka einnig þátt í sýningunni. Í leikritinu segir frá hugmyndaríkum strák sem er aleinn heima um kvöld með bangsa sér til halds og trausts þegar pabbi skreppur að sækja mömmu. Fjölmargar furðuskepnur koma í heimsókn, meðal annarra hungurvofa og hrekkjusvín, hræðslupúki og letihaugur, þannig að stráksi og bangsi hafa í nógu að snúast. Leikstjóri er Kristín Sigurrós Einarsdóttir, formaður Leikfélags Hólmavíkur.

 

Leikritið hlaut tilnefningu til Grímuverðlaunanna árið 2008 sem besta barnaleikritið.

 

Frumsýning verður í félagsheimilinu á Hólmavík kl. 20 annað kvöld, 29. desember. Síðan verða sýningar 30. desember, 4. janúar og 6. janúar og alltaf kl. 20. Miðapantanir hjá Ingibjörgu Sigurðardóttur í síma 847 4415.

 

Meðfylgjandi myndir tók Jón Jónsson á æfingum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Oktber 2024 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31